Þá hefur spænska veðurstofan staðfest það. Árið 2014 er það heitasta í landinu frá upphafi mælinga og hluti Baskalands við landamæri Frakklands að meðaltali fjórum til fimm gráðum hlýrra en í meðalári. Tæplega 20 stiga hiti er í Malaga þegar þetta er skrifað og spáin eins framyfir helgi.

Er þetta það sem koma skal syðst á Spáni í desembermánuði eftir nokkur ár?
Það þykir spænskum koma spænskt fyrir sjónir og gerði spænska ríkissjónvarpið þetta að umtalsefni með myndum frá strönd Costa del Sol þar sem fólk var í sólbaði fyrr í dag. Það er fjarri því eðlilegt enda langt liðið á desember og tíu til tólf stiga hiti öllu eðlilegra fyrir svæðið að meðaltali.
Hlýnun á Spáni er ekkert nýtt undir sólinni. Meðalhitastig þar hefur verið að færast upp á við nánast hvert ár frá 1988. Sem er að mörgu leyti slæmt fyrir þá enda vatnsskortur löngu orðið vandamál syðst í landinu og ekki bætir meiri hiti þar úr.
Þetta er hins vegar umhugsunarefni fyrir þau okkar hér norður í ballarhafi. Ef hitastig á Spáni í desember er almennt farið að skjaga í bestu sumardaga á Íslandi þarf kannski ekkert að fljúga alla leið til Kanaríeyja til að njóta hita og yls dimmustu mánuði ársins. Einn úr ritstjórn dvaldi í Sevilla um miðjan nóvember og einn daginn þar fór hitastig í 28 gráður. Sem er hátt hitastig á sumarmælikvarða.







