Ritstjórn er dálítið hissa. Þrátt fyrir að sérstök afsláttarkjör séu í boði til Kanarí hjá nokkrum ferðaskrifstofunum hérlendis er verðið á pökkum þeirra samt nokkuð út úr korti. Sérstaklega ef fólk setur saman eigin ferð.

Alltaf má græja sína eigin ferð og koma oftast nær út í verulegum plús hvað Kanarí varðar.
Sjaldan hefur verið auðveldara að skera út milliliði og útbúa sjálf ágætar Kanaríferðir og nú. Þangað er beint flug með Wow Air og Primera Air auk þess sem aðrir aðilar bjóða stöku sinnum leiguflug á vægu verði.
Tvenn pör höfðu samband við okkur og vildu vita hvort hægt væri að njóta yls og sólar á Kanarí í tvær vikur á næstunni án þess að fara vel yfir 300 þúsund krónur á par. Úrval Útsýn býður til dæmis tíu nátta ferð á ensku ströndina 20. – 30. mars næstkomandi. Þar gist á sæmilegum stað án fæðis. Tíu daga túrinn kostar parið 325.511 krónur og er lægsta verð í boði þann tíma. Hafa skal í huga að „sérstakur bókunarafsláttur“ er innifalinn í þessu verði.
Við erum með betri hugmynd. Fjórtán daga pakki með hálfu fæði mánuði síðar, 16. apríl – 30. apríl á sæmilegu hóteli á „Laugarveginum“ fyrir 204.591 krónu.
[sociallocker id=233949628]Það þýðir sparnað upp á 120 þúsund krónur rúmar og fjórar nætur að auki í ofanálag. Plús auðvitað morgun- og kvöldmatur. Líklega í heildina 150 þúsund króna hagstæðara tilboð en Úrval Útsýn býður best.En þú þarft að gera og græja sjálf/sjálfur. Fyrst að bóka flug til og frá með Wow Air. Parið greiðir alls 70.993 krónur með eina 20 kílóa tösku meðferðis fyrir flugið fram og aftur þegar þetta er skrifað. Að því loknu hendist þú á bókunarvél Fararheill þar sem finna má fjölda gististaða en við viljum hafa þetta sæmilega ódýrt svo við neglum sértilboð á hinu gamalkunna Hotel Rey Carlos. Það hótel séð fífil sinn fegurri en maturinn sæmilegur, staðsetningin fín og fjórtán nátta pakkinn þar með hálfu fæði fæst þegar þetta er skrifað niður í 133.598 krónur.
Alls ferðakostnaður á par því 204.591 króna plús klink til eða frá. Það verð setur engan á hausinn :)[/sociallocker]







