Hefur einhver þarna úti veitt því athygli að Isavía er hætt að auglýsa að Keflavíkurflugvöllur hafi verið valinn sá BESTI Í EVRÓPU? Einföld skýring á því. Hann er það ekki lengur.

Keflavíkurflugvöllur ekki lengur „bestur.“
Töluverðum fjármunum hefur verið varið í kynningar og auglýsingar hér heima undanfarin þrjú ár af hálfu Isavía til að koma því nú að hjá fólki að hvergi hafi verið betra að bíða eftir flugi en í flugstöð Leifs Eiríks í Keflavík. Þar vísað í þjónustukönnun fyrirtækisins Airport Council International en árið 2014 fékk völlurinn allra bestu einkunn flugvalla í Evrópu.
Sérdeilis vel farið með almannafé í það kynningarstarf því það er ekki eins og landinn hafi um marga alþjóðaflugvelli að ræða til að komast til og frá landinu. Ekki mikil ógn af Egilsstaðaflugvelli enn sem komið er.
En ritstjórn Fararheill finnst að menn eigi að koma heilir til dyra. Það væri fréttnæmt ef Usuain Bolt lenti nú allt í einu í fjórða sæti í spretthlaupi. Að sama skapi ætti það að rata í fjölmiðla ef „besti flugvöllur Evrópu 2014“ kemst ekki einu sinni á verðlaunapall ári síðar.
Sem er raunin samkvæmt nýjustu könnun Airport Council International fyrir árið 2015. Þar fellur Keflavíkurflugvöllur úr Meistaradeildinni.
Flugvallarstarfsfólki til varnar var nú kannski við þessu að búast. Töluverðar framkvæmdir voru í stöðinni á sama tíma og fjöldi ferðamanna jókst umtalsvert. Sem er ávísun á allt annað en góða upplifun.







