Það er dálítið merkileg staðreynd að fram til ársins 2012 höfðu Bandaríkjamenn aldrei framleitt eitt einasta landkynningarmyndband.

Loks kveikja bandarísk stjórnvöld á perunni.
Slík myndbönd hafa um áraraðir verið eitt helsta kynningartól fjölmargra ríkja og flest ríki Evrópu, svo dæmi sé tekið, framleiða nýtt slíkt opinberlega styrkt landkynningarmyndband því sem næst hvert einasta ár. Inspired by Iceland ágætt dæmi um það.
Plúsinn vitaskuld sá að í þeim mörgum, en ekki öllum, er reynt að heilla ferðamenn með öðru því en umrædd lönd eru hvað þekktust fyrir. Þess vegna eru slík myndbönd kærkomin því þau sýna staði sem kannski eru ekki í öllum tilfellum þekktir eða auðfundnir.
En nú hefur Kaninn loks vaknað af dvala og birt fyrstu alþjóðlegu landkynningarmyndböndin frá ferðamálaráði þess lands en þau eru hluti herferðar sem hlotið hefur heitið Land of Dreams.
Skemmtileg eru þau vissulega en það er kannski langsótt að þau kveiki í mörgu ferðafólkinu. Til þess eru staðirnir í myndböndunum of margir og allt of langt á milli þeirra.
Þar má sjá South Beach í Miami, Klettafjöll í Kolóradó og skóga Washington fylkis við Kyrrahafið svo dæmi sé tekið í þessu tiltekna myndbandi. Og enginn bandarískur fáni…







