Líkur eru taldar á að hryðjuverkamenn hins íslamska ríkis, Isis, skipuleggi nú „meiriháttar“ árás eða árásir í Bretlandi. Líklega ágætt að vera annars staðar þegar og ef það gerist.

Líkur á hryðjuverkum í Bretlandi taldar afar miklar. Mynd Hernan Pinera
Svo er fullyrt af hálfu lögregluyfirvalda í grein Telegraph í dag sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Þar kemur meðal annars fram að lögregla viti til þess að Isis muni eftirleiðis berjast gegn „vestrænum gildum“ með árásum á borð við þá sem varð í París í nóvember á síðasta ári. Ekki verði látið nægja lengur að ráðast að her- eða lögreglumönnum sem lengi hafa verið sérstök skotmörk hryðjuverkamanna.
Ekki kemur fram í greininni hvort hættan sé meiri á einum stað eða öðrum en ekki þarf háa greindarvísitölu til að gera sér grein fyrir að London hlýtur að vera draumaskotmark misyndismanna. Þar býr jú drottningin sjálf og aðrir konungbornir, þar höfuðstöðvar fjármálaveldis Bretlands og hér er þinghúsið. Þá má gera ráð fyrir að Isis-liðar, sem margir hverjir eru frá Bretlandi, viti mætavel af þeim milljónum ferðamanna sem um borgina þvælast ár hvert. Þá er borgin svo stór og mikil að ógerlegt er með góðu móti að gæta alls.
Farið varlega þarna úti.







