Efist einhver um að heimur versnandi fer nægir að glugga eilítið í fjölmiðla. Upp er risinn nýr írskur lýðveldisher á Norður Írlandi og sá beið ekki boðanna að sprengja mann og annan í Belfast.

Margt ágætt að sjá hér í borg en líklega ráðlegt að hinkra nokkur misseri úr þessu.
Eins og við erum nú búin að hafa fyrir að benda fólki á Belfast sem fínan kost í nett og ódýrt helgarfrí….
IRA, írski lýðveldisherinn, barðist með kjafti og klóm gegn Bretum hér lengi vel. Það plús eilíf átök kaþólikka og mótmælenda gerðu að verkum að Norður Írland og Belfast sérstaklega var algjörlega út af korti sem áfangastaður fyrir ferðafólk.
Loks þegar birta fer aðeins til í bænum springa sprengjur í miðborg Belfast á nýjan leik og hópur er kallar sig hinn nýja IRA lýsir yfir ábyrgð á ódæðinu.
Líklega best að leyfa Belfast að eiga sig svona næstu misserin.







