Allt nýtt vekur ótta hjá okkur öllum. Munurinn bara sá að sum okkar fela það vel meðan aðrir bera tilfinningarnar utan á sér.

Allt sem þú þarft að vita um íbúðaskipti í handhægri bók. Skjáskot
Eitt það sem ritstjórn Fararheill veit að kveikir ugg í brjóstum er þegar ákveða skal hvort prófa eigi íbúðaskipti í fyrsta skipti. Slíkt heillar vitaskuld alla sem hafa ferðabakteríu í blóðinu. Með slíku móti má skera út dýrasta hlutann í öllum ferðalögum: gistinguna.
Hugmyndin per se ósköp eðlileg. Hvers vegna ekki að minnka útgjöld við ferðalög um tugi eða hundruð þúsunda og skiptast á vistarverum við erlenda aðila? Það er jú ekki eins og þú og fjölskyldan notið heimilið mörg þúsund kílómetrum í burtu.
En það sem gerir þetta erfitt er að enginn veit hvaða mann fólk geymir. Heimili manns er jafn heilagt og Péturskirkjan í Róm, ef ekki heilagra, og enginn vill hafa ókunnugt erlent fólk með puttana á munum sem hafa tilfinningalegt gildi heimavið.
Í þessu samhengi skiptir litlu að benda á 96 prósent íbúðaskipta ganga snurðulaust fyrir sig og stundum jafnvel gott betur. Ritstjórn veit af fólki á Seltjarnarnesi sem kom heim í kotið eftir slík skipti til að finna að allt húsið hafði verið þrifið hátt og lágt, bílskúr meðtalinn, og ný ilmandi blóm voru í hverju herbergi. Ekkert leiðinleg heimkoma úr ferð.
En fyrir þá sem eru tvístígandi bendum við hiklaust á hana Margréti hjá Ferðalangi. Ekki aðeins er hún að leiðbeina fólki með ferðir og ferðalög heldur hefur hún skrifað litla hjálparbók fyrir þá sem eru að velta íbúðaskiptum fyrir sér. Endilega kíkið á vefinn hennar hér og fáið senda bókina ykkur að kostnaðarlausu.







