Það er gömul saga og ný að Fararheill hefur ítrekað bent lesendum á að eyða örlitlum tíma til að gera verðsamanburð áður en haldið er út í heim. Það er með hreinum ólíkindum hvað það getur haft mikinn sparnað í för með sér.

Hreint ekki sama með hverjum er flogið til Barcelóna sumarið 2016

Hreint ekki sama með hverjum er flogið til Barcelóna sumarið 2016

Enn eitt dæmið um það má sjá hér að neðan. Nú styttist í sumarið og sem fyrr er hin eiturskemmtilega Barcelóna að heilla mann og annan.

Við erum svo „heppin“ þessa dagana að geta valið úr fjórum flugfélögum ef við finnum hjá okkur djúpa þörf til að spássera á Römblunum í Barca þetta sumarið. Ef allt væri eðlilegt gæti fólk gert ráð fyrir að lággjaldaflugfélag á borð við Wow Air væri nú sjálfsagður ódýrasti kostur til Spánar. En þetta er ekki alveg svo einfalt.

Eins og sjá má á meðfylgjandi töflu er næsta ómögulegt að sjá í fljótu bragði hvaða flugfélög kalla sig lággjaldaflugfélög og hver ekki. Icelandair og Primera Air auglýsa sig ekki sem slík þó reyndar mörgum finnist svo vera. En Wow Air og Vueling stæra sig villt og galið af lággjaldaflugsmerkinu.

Taflan sýnir lægsta verð á flugi aðra leiðina til Barcelóna í júní, júlí og ágúst með þessum fjórum flugfélögum samkvæmt bókunarvélum flugfélaganna kl. 20:40 þann 9. mars 2016. Aðeins hjá Icelandair er farangur innifalinn en hjá öðrum þarf að bæta þeim pakka ofan á verðið.

Hér kemur glögglega í ljós að það sem marga grunar er ekki endilega rétt. Það er hið spænska Vueling sem býður lægsta verð í júní aðra leiðina út. En ef þörf er á 20 kílóa tösku, sem oftast er raunin, er það allt í einu Icelandair sem er að bjóða best.

Að sama skapi er Icelandair svo úti á þekju í júlí þegar Wow Air hendir okkur yfir hafið fyrir lægsta krónutölu. Svo vandast málið aftur í ágúst þegar Wow Air er aftur að bjóða lægsta verð en ef taska er nauðsyn er Icelandair allt í einu besti kosturinn að nýju.

Já, við vitum að þetta er flókið og ruglandi og það er einmitt hugmyndin hjá flugfélögunum að hafa það svoleiðis. En þetta sýnir líka að best er að taka hlutunum ekki sem gefnum. Það er ekki gefið að lággjaldaflugfélögin séu að bjóða best og allra síst ef pakka þarf stórri tösku.

[sociallocker id=233949628]Ágætt að hafa líka í huga að nú eru síðustu forvöð að tryggja sér flugmiða til Barcelóna áður en miðar þangað fara að hækka von úr viti eins og raunin hefur verið þau ár sem við höfum gert slíkar úttektir. Ágætt líka að muna að verð á gistingu er almennt 20% lægra en ella í júní en júlí, ágúst og september.

* Könnun gerð samtímis hjá öllum aðilum kl.20.40. Lægsta verð aðra leið sumarmánuðina með sköttum og gjöldum. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru mjög örar hjá öllum aðilum.

* Könnun gerð samtímis hjá öllum aðilum kl.20.40. Lægsta verð aðra leið sumarmánuðina með sköttum og gjöldum. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru mjög örar hjá öllum aðilum.[/sociallocker]