Seint er öll von úti. Knattspyrnuáhugafólk sem ekki náði að tryggja sér miða á landsleiki Íslands á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar þarf ekki að endilega að gefa þann möguleika upp á bátinn.

Enn er möguleiki að negla miða á leiki Íslands á EM í sumar.

Enn er möguleiki að negla miða á leiki Íslands á EM í sumar.

Eins og kunnugir vita þá þurftu aðdáendur að skrá sig fyrir miðum á leiki mótsins á síðasta ári á vef Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA. Færri fengu þó en vildu enda eftirspurn talsvert umfram framboð á velflestum þeirra leikja sem fram fara.

Þann 9. mars næstkomandi mun UEFA opna fyrir svokölluð miðaskipti en þá gefst færi á að selja aftur þá miða sem áður höfðu verið keyptir en fólk getur ekki lengur notað einhverra hluta vegna. Að sama skapi geta þeir sem ekki urðu sér úti um miða áður reynt á nýjan leik.

[sociallocker id=233949628]Miðana er aðeins hægt að selja eða kaupa á sama verði og áður var svo enginn græðir neitt á sölu. Opnað verður fyrir miðaskiptin á hádegi og um að gera að koma sér upp aðgangi á þeim vef fyrirfram enda líklegt að eftirspurn almennt sé enn töluvert umfram framboð. Söluvefurinn hér.

Þessu tengt er ekki úr vegi að nefna að þó miðasala annars staðar en hjá UEFA sé óheimil er næsta víst að stöku aðilar þarna úti hugsa sér gott til glóðar að selja miða á vettvangi fyrir leiki. Þeir miðar munu þó ábyggilega kosta heldur meira en annars.[/sociallocker]