Um tvær milljónir einstaklinga hafa forvitnast um nýjasta útspil flugfélagsins Icelandair, stopover buddy, á samfélagsmiðlum eftir því sem Fararheill kemst næst. Að minnsta kosti hundruðir ef ekki þúsundir óskað eftir slíkri þjónustu. Og nú bætast fleiri flugfélög í hópinn.

Útreið, skokk, fjallgöngur, sleðaferðir, rokktónleikar. Ýmislegt spennandi í boði með starfsfólki Icelandair. Mynd Icelandair

Útreið, skokk, fjallgöngur, sleðaferðir, rokktónleikar. Ýmislegt spennandi í boði með starfsfólki Icelandair. Mynd Icelandair

Fyrir þá sem koma af fjöllum þá auglýsti Icelandair nýja þjónustu fyrir nokkrum vikum síðan. Sú þjónusta heitir stopover buddy og gengur út á að bjóða þeim viðskiptavinum er þess óska að flakka um á Íslandi með einum starfsmanni flugfélagsins eina dagsstund eða svo.

Hugmyndin ákaflega góð og fyrir okkar leyti gaman að sjá Icelandair gera eitthvað fyrir viðskiptavininn án þess að greiðsla kæmi fyrir.

Spurning hins vegar hvort og þá hve mikið ferðaþjónustuaðilar aðrir og leiðsögufólk verða af tekjum vegna þessa því slá má föstu að þeir útlendingar sem eyða degi með starfsmanni Icelandair eru þá ekki að kaupa þjónustu annars staðar á meðan.

[sociallocker id=233949628]En hugmyndin góð og það finnst fleirum en ritstjórn Fararheill. Til dæmis forráðamönnum hollenska flugfélagsins KLM sem eru að bjóða ekki svo ólíka þjónustu og það strax í þessum mánuði. Sá er munurinn þó að hollenska flugfélagið notar ekki eigin starfsmenn heldur áhugasama borgarbúa í Amsterdam eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Hið allra besta mál. Alls staðar er skemmtilegt fólk sem kann skemmtilega hluti og veit um skemmtilega staði sem enginn ferðahandbók er að benda þér á. Allt í lagi að hafa þetta í huga ef fólk einn daginn finnur sig í flugi með KLM.[/sociallocker]