Menningarvitar og fornminjaunnendur rífa hár sitt og skegg þessa dagana suður á Ítalíu sökum þess hve stjórnvöld hirða lítið um mörg stórkostleg menningarverðmæti þar í landi.

Einhverjar merkustu rómversku fornminjar heimsins eru í stórhættu á Ítalíu. Lítið sem ekkert er um þær hirt sökum niðurskurðar. Mynd Gysah Boechat

Einhverjar merkustu rómversku fornminjar heimsins eru í stórhættu á Ítalíu. Lítið sem ekkert er um þær hirt sökum niðurskurðar. Mynd Gysah Boechat

Sérstaklega hafa menn áhyggjur af hinu stórkostlega mannvirki Hadríanusar keisara, Villa Adriana, skammt frá smábænum Tivoli í Lazio héraði, sem sumir telja merkilegustu rómversku mannvirkin sem enn standa að hluta.

Villa Adriana er sumarhöll keisarans fyrrverandi og er vafalaust meðal merkustu fornminja sem á Ítalíu eru þó af mörgu sé að taka. Bæði byggingarnar og ekki síður risastór garðurinn eru sannarlega sjón að sjá og ekki að ástæðulausu sem staðurinn rúllaði fljótlega inn á Heimsminjaskrá SÞ eftir að þeirri stofnun var komið á fót.

En ómetanlegar byggingar keisarans eru allar að hrynja og strax fyrir fimm árum síðan var hluti þeirra settur á lista World Monuments Watch sem eru samtök sem reyna að varðveita slíka menningararfleifð. Síðan þá hefur leiðin aðeins legið niður á við og það fjármagn sem árlega hefur verið veitt til varðveislu Villa Adriana hefur nú verið skorið niður verulega á versta tíma.

Hafa umsjónarmenn þurft að loka sífellt stærri hluta garðsins fyrir ferðafólki af þessum sökum og í dagblaðinu Corriere della Sera óttast einn virtasti fornleifafræðingur Ítala, Andrea Carandini, verulega um afdrif sumarhallarinnar.

Til Villa Adriana er komist með strætisvagni 4 frá bænum Tivoli sem er í fimm mínútna fjarlægð.Frá Róm eru tíðir strætisvagnar til Tivoli. Þá bjóða margir ferðaþjónustuaðilar upp á ferðir þangað með leiðsögn. Miðaverð er 1.200 krónur og ekki gefa þér minna en tvær klukkustundir og helst lengur. Svæðið er lokað á mánudögum og milli 13:30 og 14:30. Heimasíðan hér en aðeins á ítölsku.