Klukkan er 23:00 sunnudaginn 4. september 2016. Næsta brottför frá Leifsstöð samkvæmt brottfararlista er fimmtán mínútur yfir miðnætti eða eftir 75 mínútur þegar þetta er skrifað. Engu að síður er 10 mínútna bið í öryggishliðinu!!!

Að nálgast miðnætti en löng og þreytt bið í öryggisgæslunni í Leifsstöö. Skjáskot

Að nálgast miðnætti en löng og þreytt bið í öryggisgæslunni í Leifsstöð. Skjáskot

Ekkert leyndarmál að Isavía er að greiða yfirplebbum of mikið og fólkinu á gólfinu of lítið. Hvers konar arfaléleg þjónusta er það að hafa fólk í 10 mínútna öryggistékki þegar slefa fer í miðnætti og aðeins fjórar vélar fara á loft næstu þrjár klukkustundirnar? Er þetta O´Hare flugvöllur í Chicago?

Þýðir það ekki að Isavía sker niður staff eins og mögulegt er þegar kvölda tekur. Það kostar jú næturálag að hanga og skoða í þaula handfarangur þeirra fjölmörgu sem hyggja á hryðjuverk um borð í flugi á leið frá Íslandi.

Óboðlegt með öllu. Farþegar sem fljóta að kvöld- eða næturlagi eiga ekki að bíða lengur en farþegar að degi til. Þess vegna greiða flugfélögin sérstakt gjald fyrir að lenda og fara að kvöld- eða næturlagi.

Út með feitlaginn forstjóra Isavía og það ekki seinna en nú. Fólk sem ræður ekki við eigin líkamsþyngd ræður ekki við að stjórna fyrirtækjum.