Tíðindi

Stórslys skemmtiferðaskipa tímaspursmál

  25/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Stórslys á borð við það sem varð fyrir rúmri viku síðan þegar skemmtiferðaskipið Costa Concordia steytti á skeri fyrir utan strönd eyjunnar Giglio á Ítalíu var aðeins tímaspursmál hvenær ætti sér stað. Líkurnar á slíkum slysum fara mjög vaxandi.

Þetta er mat sérfræðinga sem blaðamenn Der Spiegel ræða við í nýjasta hefti tímaritsins en þar er farið í saumana á hvað gerðist þegar lúxusskipið Costa Concordia strandaði með þeim afleiðingum að sextán létust og enn er tæplega 30 saknað.

Fram kemur í grein Spiegel að kunnugir hafa lengi haft áhyggjur af sístækkandi flota skemmtiferðaskipa og er sá ótti tilkominn vegna þess að stærð þeirra er orðin svo mikil að þau eru ekki ýkja góð sjóskip. Með öðrum orðum að það sé einungis tímaspursmál hvenær skemmtiferðaskip sekkur með manni og mús á hafi úti.

En stærð Costa Concordia, sem þó er mun minna en stærstu skemmtiferðaskip veraldar, hefur þó valdið miklum erfiðleikum í kjölfar strandsins. Það helgast af því að skipið tók að halla mjög strax eftir strandið sem aftur þýddi að ekki var hægt að nota helming þeirra björgunarbáta sem um borð voru og geymdir þeim megin sem skipið hallaði. Ekki nóg með það heldur var hinn helmingur björgunarbátanna einnig ónothæfir af sömu ástæðu; skipið hallaði og jafnvel þótt bátarnir hefðu komist í sjó var engin leið fyrir farþega að komast í þá með góðu móti.

Í tilfelli Costa Concordia munaði öllu að björgunarmenn og bátar voru komnir að skipshlið á skömmum tíma og ekki síður að skipið sökk ekki alveg enda því sem næst við strönd eyjunnar Giglio og færir sundmenn gátu komist í land eftir strandið af eigin rammleik.

Síðustu fregnir af því strandi eru að skipstjórinn hafi farið svo nálægt eyjunni til að kasta kveðju með lúðrablæstri á gamlan samstarfsvin hjá Costa Cruises en sá á bústað á Giglio. Fram kemur í grein Spiegel að þetta var ekki í fyrsta skipti sem skemmtiferðaskip fer svo nálægt eyjunni. Aðeins örfáir mánuðir eru síðan það gerðist síðast en þá var stefna skipsins aðeins önnur.