Beittu þáverandi stjórnendur Icelandair bellibrögðum til að setja Iceland Express á hausinn og koma þannig í veg fyrir samkeppni árið 2004?
Eftir átta ára yfirlegu er loks komið að því að málflutningur vegna meints samkeppnislagabrots Icelandair fari fyrir Hæstarétt Íslands en þar takast á Samkeppniseftirlitið og flugfélagið.
Er mál þetta í raun alveg kostulegt því núverandi eigandi Iceland Express, Pálmi Haraldsson, sat í stjórn Icelandair þegar fyrirtækið er sakað um undirboð í því skyni að gera út af við nýja flugfélagið. Hafi það verið ætlunin tókst það og keyptu stjórnendur Icelandair 89 prósenta hlut í Iceland Express fyrir einungis fimmtán milljónir króna þegar fyrirtækið var komið að fótum fram.
Fyrrum talsmaður Iceland Express, Ólafur Hauksson, rifjar upp þessa sögu í pistli í Morgunblaðinu í dag og gagnrýnir þar jafnframt samkeppnisyfirvöld fyrir seinagang og héraðsdóm fyrir fáránlegan fyrri dóm sem fann ekkert athugavert við mikið verðfall á ferðum Icelandair á sömu flugleiðum og Iceland Express um svipað leyti og nýja flugfélagið tók til starfa.
[… Frá fyrsta degi árið 2003 hóf Icelandair þunga sókn gegn þessum nýja keppinaut í millilandaflugi. Markmiðið Icelandair var að útrýma samkeppninni sem fyrst með Vorsmellum og Netsmellum ásamt stöðugum undirboðum í öðrum fargjaldaflokkum.Það segir sitt um hversu langt Icelandair gekk til að kaffæra keppinautinn, að farþegatekjur fyrirtækisins lækkuðu um 8,5 milljarða króna samanlagt árin 2003 og 2004, á núverandi verðlagi, miðað við árin á undan. Þessum tekjum fórnaði Icelandair sem sé til að koma í veg fyrir samkeppni í millilandaflugi.Undirboð Icelandair höfðu vitaskuld lamandi áhrif á Iceland Express. Félagið hafði enga sterka fjárhagslega bakhjarla og enginn slíkur þorði að leggja því lið í slagnum við Icelandair. Iceland Express leitaði því ítrekað eftir íhlutun samkeppnisyfirvalda. En þau höfðu ekki kjark til að stoppa samkeppnislagabrot Icelandair. Haustið 2004 var Iceland Express í raun gjaldþrota vegna linnulausra undirboða Icelandair. Frekar en að láta félagið fara á hausinn settu eigendurnir það á brunaútsölu. Fyrrverandi stjórnarmenn og hluthafar í Icelandair mættu snemma morguninn eftir og borguðu heilar 15 milljónir króna fyrir 89% hlut í félaginu. Skömmu eftir eigendaskiptin byrjuðu bæði félögin að hækka lægstu fargjöldin, sem fóru upp um 50% á aðeins fjórum mánuðum.
Allt frá því seint á árinu 2004 til dagsins í dag, í tæp átta ár, hefur Samkeppniseftirlitið burðast við að koma lögum yfir Icelandair vegna samkeppnislagabrotanna. Stofnunin hefur margt gott lagt til málanna í þeirri meðferð. Icelandair hefur þráast við allan tímann, og beitt öllum tiltækum lagaklækjum til að tefja fyrir. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi loks í málinu í fyrra. Niðurstaðan var sú að það hefði ekki verið undirboð hjá Icelandair að bjóða fargjöld til London fyrir rúmar 12 þúsund krónur fram og til baka (auk skatta). Hins vegar hefði það verið lítilsháttar undirboð að bjóða slíkar ferðir á svipuðu verði til Kaupmannahafnar. Dómurinn taldi hins vegar enga ástæðu til að sekta Icelandair um 130 milljónir króna, líkt og samkeppnisyfirvöld höfðu gert. Þessari niðurstöðu var áfrýjað til Hæstaréttar.
Héraðsdómur tók ekkert tillit til þess að undirboð Icelandair höfðu leitt til þess að stofnendur Iceland Express töpuðu félaginu – og það í hendurnar á hrægömmunum sem stóðu að samkeppnislagabrotunum í stjórn Icelandair. Tjón frumherjanna er ekki einu sinni nefnt í dómsniðurstöðunni.Í héraðsdómnum er ekkert spáð í heildarmyndina, heldur bara hvort reikna eigi hinn eða þennan kostnaðarliðinn sem hluta af Netsmellum. Til að mynda er stjórnunarkostnaður og sölukostnaður Icelandair ekki talinn til útgjaldaliða vegna Netsmellanna, líkt og þeir hafi átt sjálfstætt líf.
Þar má finna þá undarlegu niðurstöðu að sala á tugþúsundum flugferða til London á rúmar 12 þúsund krónur auk skatta hafi ekki verið undirboð – og þá erum við að tala um fram og til baka. Þetta sama flugfélag rukkaði áður aldrei minna en 33 þúsund krónur plús skatta fyrir sömu ferðir. Hver var tilgangurinn með aðgerðum Icelandair annar en sá að koma í veg fyrir samkeppni?






