Ófærð og snjóþyngsli hafa valdið verulegum truflunum á utanlandsflugi til og frá Keflavíkurflugvelli og hafa þær keðjuverkandi áhrif frameftir degi.
Vélar Icelandair sem áttu að fara í loftið milli klukkan sjö og átta í morgun eru að leggja í hann fyrst núna tæplega fimm klukkustundum á eftir áætlun.
Sömuleiðis þurftu margir farþegar að gista í Leifsstöð í nótt sem leið sökum ófærðar og er það sannarlega plús í kladda þeirra sem vilja fá ferðamenn til landsins yfir myrkustu mánuðina að ferðafólkið komist ekki einu sinni úr flugstöðinni. Eitthvað verður að hugsa það upp á nýtt.
Reykjanesbrautin hefur verið opin og lokið til skiptis í morgun en nú hefur veðrinu slotað og hún ætti að haldast opin nema meira óveður skelli á síðar í dag. Ekkert bendir þó til þess samkvæmt Veðurstofu Íslands.






