Tíðindi

Ótrúlegur uppgangur Norwegian

  25/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Tíu ára gamalt flugfélag sem selur ferðir á lágmarksverðum hefur nú lagt inn pantanir hjá bæði Boeing og Airbus um kaup á 372 nýjum farþegaþotum! Er þetta stærsta pöntun á flugvélum sem nokkurt evrópskt flugfélag hefur nokkru sinni gert.

Efist einhver um þann hagnað sem hafa má af því að bjóða vörur og þjónustu á verði sem gerir neytendur glaða og ánægða nægir að líta til norska lágfargjaldaflugfélagsins Norwegian. Á aðeins tíu árum er norska flugfélagið komið í hóp Ryanair og easyJet sem stærstu lágfargjaldaflugfélög Evrópu.

Uppgangur þessi er með hreinum ólíkindum en Norwegian er eitt þeirra nýju flugfélaga sem bjóða munu ferðir til og frá Íslandi næsta sumarið. Ruku bréf í flugfélaginu eðlilega hátt upp á mörkuðum við fréttirnar og það segir sitt að það skuli vera tiltölulega nýtt flugfélag sem gerir stærstu flugvélapöntun nokkru sinni í Evrópu.

Fréttir þessar verða enn stærri þegar haft er í huga að núverandi flugfloti Norwegian samanstendur aðeins af 62 vélum.

Hefur ritstjórn Fararheill lengi verið þeirrar skoðunar að stóru, gömlu flugfélögin eins og Air France, Lufthansa, British Airways séu fyrir nokkru komin á endastöð í samkeppnislegu tilliti. Þessar fréttir staðfesta það sem aldrei fyrr.

Lágfargjaldaflugfélögin eru framtíðin.