Tíðindi

Tel Aviv mekka samkynhneigðra

  25/01/2012desember 23rd, 2014No Comments

Borgin Tel Aviv í Ísrael hefur lengi verið meðal helstu áfangastaða samkynhneigðra einstaklinga hvaðanæva úr veröldinni sökum þess að vera einn örfárra staða þar sem hommar og lesbíur geta kysst og haldist í hendur á götum úti án þess að hafa áhyggjur af neinu. Borgaryfirvöld hafa nú einsett sér að gera enn betur og gera borgina að áfangastað númer eitt, tvö og þrjú fyrir samkynhneigða.

Engin furða er að borgin sé vinsæl. Hitastigið ljúft allan ársins hring, næturlíf óvíða sagt fjölbreyttara og lengi hafa borgarbúar almennt sýnt hommum og lesbíum mun meiri skilning og umburðarlyndi en gengur og gerist víða annars staðar.

En ástæða þess að stjórnvöld í Tel Aviv vilja gera borgina að mekka samkynhneigðra er þó ekki bundið við umburðarlyndi heldur snýst þetta líka um peninga. Samkynhneigðir ferðamenn eru góðir ferðamenn að sögn borgarstjórans að því er fram kemur í frétt AP um málið. Þeir eru opnir og skemmtilegir, eyða miklum peningum og skapa lítil sem engin vandamál.

Borgin hefur ákveðið að eyða næstu árin helmingi alls fjármagns til kynningarmála eingöngu til að heilla samkynhneigða og trekkja að fleiri slíka. Ekki skemmir fyrir að nýlega opnaði þar í borg eitt allra fyrsta hótel heims sem eingöngu er fyrir samkynhneigða.

Hefur þetta mikla umburðarlyndi gagnvart hommum og lesbíum vakið athygli mannréttindasamtaka sem saka borgaryfirvöld um tvískinnung. Væri ekki rétt að sýna íbúum Palestínu sama umburðarlyndi og samkynhneigðir?