Þriðja hraðtilboð Icelandair á árinu er komið í sölu og verður það næsta sólarhring til hádegis 25.janúar. Að þessu sinni eru tvær fokdýrar borgir í boði og veitir kannski ekki af að lækka verð á flugfargjöldum.
Fargjaldið til Oslóar í Noregi fæst nú á 14.900 krónur aðra leið og 28.300 báðar. Til Amsterdam í Hollandi þarf að punga út 16.900 krónur hyggist fólk ekki snúa aftur en 34.700 annars. Þessar ferðir verður þó að fara í febrúar eða mars á þessu ári.
Hvorug borgin leiðinleg heimsóknar en feitur galli að báðar eru dýrar fyrir íslenska meðallaunspyngju.
Osló er samkvæmt nýrri könnun fjórða dýrasta borg heims eins og sjá má hér og Amsterdam er heldur ekki ódýr þó skárri en Osló.
Hafa skal í huga að frá Osló er komist víða um heim á sanngjörnu verði með lággjaldaflugfélaginu Norwegian.
Heimasíða Norwegian hér.
Heimasíða Icelandair hér.






