Einhverjar merkilegustu skíðaferðir sem í boði eru á byggðu bóli eru nú auglýstar á vef Wow Air. Merkilegar fyrir þær sakir að áhugasamir þurfa sjálfir að koma sér alla leiðina, hvorki skíðabúnaður né farangur innifalinn í verði og þaðan af síður kemst fólk mikið í skjannahvítar brekkur án þess að greiða aukalega fyrir.
Við viðurkennum fúslega að skilja hvorki upp né niður í ferðaskrifstofum sem auglýsa tilteknar ferðir sem reynast svo á afar hæpnum forsendum og verða jafnvel til þess að áhugasamir verða reiðir eða fúlir. Við förum jú til borga þegar við kaupum „borgarferðir“ og við fáum yfirleitt innifalið golf í flestum „golfferðum“ og víst fáum við sól í sólarferðum oftast nær. En í skíðaferðum gildir annað lögmál.
Sem afleiðing af því að auglýsa skíðaferðir án skíðaferða getur Wow Air og aðrir aðilar auglýst margfalt betra verð en raunin er. Við tókum að gamni eina stikkprufu hjá Wow Air sem meðal annars auglýsir skíðaferð til Saalbach Hinterglemm í Austurríki. Lægsta verð þangað á góðum tíma í desember eða janúar gefið upp 128.900 krónur á mann í vikuferð með gistingu með hálfu fæði. Ekkert amalegt við það enda topp skíðasvæði, aldeilis rétti tíminn og verðið barasta ágætt. Auglýst heildarverð fyrir tvo saman því 257.800.
Vandast málið pínulítið
Í smáa letrinu kemur nefninlega fram að þú getir ekki tekið neitt með þér nema handfarangur??? Nú, var þetta ekki „skíðaferð.“ Ekki tekur fólk skíði eða bretti í handfarangur. Greiða þarf því fyrir skíði fram og aftur 7.990 krónur. Heildarkostnaður á mann miðað við lægsta auglýsta verð því 136.890 krónur.
Ókei, þá erum við klár eða hvað?
Ekki alveg. Hugmyndin er ekki að kaupa skíðagalla eða kuldafatnað í Austurríki enda eitt dýrasta land heims. Þaðan af síður eru undirfataverslanir á hverju strái í fjallasölum Alpanna og því nærur eða tvær nauðsyn líka. Við erum því nauðbeygð að greiða töskugjald og tökum sitt hvor 20 kílóin með. Það kostar 6.990 krónur á mann báðar leiðir. Heildarkostnaðurinn á manninn kominn í 143.880 krónur.
Já, en þá er líka allt klappað og klárt og við getum farið að festa bindingarnar…
Því miður er málið ekki svo einfalt. Eftir að lent er í Salzburg um þrjúleytið á laugardegi á enn eftir að koma sér upp í fjöllin því það er ekki innifalið í „skíðaferðinni.“ Þó ekki sé það tiltekið á vef Wow er rúnturinn aðra leiðina um ein og hálf klukkustund að öllu eðlilegu. Rútur fara reglulega á milli og fargjaldið fram og tilbaka með þeim kostar 12.092 krónur með Holiday Shuttle. Þá bætist það við heildarverð sem er þá komið í 155.972 á mann.
Svo rekum við augun í þetta á vef rútufyrirtækisins: on Saturdays during the winter season, the journey time can be extended through increased traffic by 2-3 hours! Úpps! Við þá kannski ekki komin á hótelið í Saalbach fyrr en um átta-leytið um kvöldið kannski. Gæti orðið langur dagur.
Jamm og jæja, þá er svaðilförum lokið og við loks sett undir okkur betri skíðin…
Abba babb í bátinn þar því þó gönguskíðafólk geti daginn eftir valsað um að vild fer enginn í heillandi brekkurnar án þess að kaupa skíðapassa. Svæðið í úrvalsflokki og háannatími svo þeir kosta sitt. Gefum okkur að við ætlum að skíða í fimm daga og nota einn daginn í annað. Fimm daga passi kostar manninn 31.886 krónur. Heildarupphæðin á einstakling er því 187.858 krónur. Raunverð fyrir tvo saman til Saalbach með öllu er því 375.716.
Skíðaferð er annað en flug og gisting eða hvað
Verðmunurinn nemur því hvorki meira né minna en 117.916 krónur á auglýstu lágmarksverði hjá Wow og raunverði á mann alla leiðina og breint í brekkurnar.
Að mati Fararheill er sjálfsögð þjónusta hjá Wow og öðrum ferðaskrifstofum að gefa áhugasömum ALLAR upplýsingar og fela ekkert eða fegra. Væri ekki eðlilegra að auglýsa til dæmis þessa ákveðnu ferð á 187.858 krónur á mann. Slíka ferð er sannarlega hægt að kalla skíðaferð og enginn hugsar ferðaskrifstofunni þegjandi þörfina.








