Eins og Fararheill hefur ítrekað fjallað um er neytendavitund Íslendinga lítil sem engin enda hentar það ekki ráðandi öflum að Jón og Gunna fari að spyrja of margra spurninga. Nú hefur íslenskum vef sem fann allra ódýrustu helgarfargjöld í flugi á augabragði verið lokað og er enn eitt dæmið um að Íslendingar kunna ekki gott að meta.
Vefurinn, helgarferd.is, var sérhönnuð flugleit fyrir okkur Íslendinga eins og við fjölluðum um fyrir rúmu ári síðan þegar vefurinn opnaði formlega.
Þar fundust á augabragði allar helgarferðir í boði héðan til ýmissa staða og á hvaða verði svo sáraeinfalt var að bóka í hvelli án þess að eyða tíma til. Reyndu það á öðrum flugleitarvefum eins og Dohop en þar þarf að fletta sérstaklega upp á hverjum einasta áfangastað og leita fram og aftur.
Verst kannski að þarna var ekkert stórfyrirtæki að baki heldur eingöngu ferðaáhugafólk sem vildi gott gera.
Dapurt.








