Allir sem reynt hafa gegnum tíðina að bóka sjálfir flug og gistingu á erlendri grundu vita mætavel að þó það undantekningarlítið borgi sig þá getur það ferli verið tímafrekur andskoti. Að hluta til vegna þess að fletta verður tugum síða hjá öllum flugfélögum til að finna besta verðið hverju sinni. En ekki lengur.

Standi helgarferð fyrir dyrum má nú loks finna vef sem gerir allan verðsamanburð auðveldan og fljótlegan.
Nýr vefur, Helgarferð.is, leysir þetta vandamál og gerir fólki kleift að sjá á svipstundu hvaða flugfélag býður lægstu fargjöldin til ákveðinna áfangastaða. Eins og nafnið gefur til kynna gildir þetta þó aðeins um flug nálægt eða yfir helgar og sjá má glögglega á augabragði allar næstu helgar hvort hagstæðara er að gista tvær nætur eða fjórar ef helgarferð er á dagskránni.
Ólíkt hefðbundnari leitarvélum er Helgarferð.is þannig upp settur að engin sérstök þörf er að vita upp á hár hvert förinni er heitið heldur er einnig fljótlegt að rúlla yfir þá áfangastaði sem í boði eru héðan frá Íslandi og jafnvel stökkva til þegar eitthvað spennandi finnst.
Vefurinn er nýr af nálinni og því enn sem komið er aðeins flugfélögin Iceland Express og Wow Air sem þar finnast. Það kemur til með að breytast fljótlega þegar við bætast önnur þau flugfélög sem hingað fljúga.
Ritstjórn Fararheill.is mælir eindregið með að áhugasamir kynni sér framtakið sem efalítið mun skapa enn meiri samkeppni í flugi til og frá landinu.







