Tíðindi

Sólarsprettur Plúsferða við frostmark

  08/08/2011desember 4th, 2014No Comments

Ferðaskrifstofan Plúsferðir býður nú næsta sólarhringinn svokallaðan sólarsprett til tveggja áfangastaða sinna á Spáni og auglýsir að verðið sé hlægilegt í meira lagi.

Ekki stökk ritstjórn Fararheill.is neitt sérstakt bros við lestur tilboðsins en bæði tilboð gilda um ferðir í þessari viku og aðeins fyrir fjölskyldur með tvö börn.

Um er að ræða annars vegar vikuferð á föstudaginn kemur 12. ágúst til Roquetas de Mar skammt frá Almería og gist á Trinidad hótelinu með öllu inniföldu. Auglýst verð 102.900 krónur á mann sem gerir þá 411.600 krónur alls fyrir tvo fullorðna og tvö börn.

Hins vegar átta daga ferð til Tenerife á Kanaríeyjum á fimmtudaginn 11. ágúst og er prísinn þar miðað við tvo fullorðna og tvö börn 102.334 á mann eða alls 409.336 krónur. Er þar um millilendingu að ræða á heimleiðinni.

Miðað við fyrirvarann sem enginn er og að fjölskyldum með börn gagnast í raun lítið „allt innifalið“ tilboð telur Fararheill.is þessi „sjóðheitu“ tilboð Plúsferða vera nær því að vera við frostmark. Börnin eru jú ekki að sitja yfir hlaðborðum og háma í sig mat allan daginn og ekki drekka þau áfengi. Þetta tvennt var jú upphaflega talinn mesti kosturinn við að bjóða slík „allt innifalið“ tilboð.