Nokkrar ferðaskrifstofur hérlendis hafa á stundum boðið sólarlandaferðir á vægara verði en ella gerist en sá hængur verið á að viðskiptavinurinn fær ekki að vita á hvaða hóteli hann dvelur á viðkomandi stað fyrr en rétt fyrir brottför.
Ritstjórn hefur fengið skeyti frá þremur mismunandi aðilar sem kvarta undan þessu fyrirkomulagi en í öll skiptin reyndust þau hótel sem fengust með þessum hætti ekki vera sömu hótel og ferðaskrifstofurnar nota alla jafnan.
Það virðist því vera útbreiddur misskilningur að í þær ferðir sem þannig fást sé engu að síður um sömu hótel að ræða og í hefðbundnum pakkaferðum.
Verður þó taka upp hanska fyrir ferðaskrifstofurnar í þessum tilfellum því oft munar tugum þúsunda á hefðbundnu verði ferðar og hinum þar sem hótelið er falið fram á lokamínútu. Það væri óeðlilegt í meira lagi að niðurgreiða nákvæmlega sömu hótel og bjóðast öllu jöfnu á fullu verði.
En vitaskuld er engin ávísun á að hótel sem svo fæst sé endilega vel staðsett eða í grennd við aðra gististaði en í staðinn er fólk að fá nokkuð duglegan afslátt af ferðinni.






