Frá árinu 1987 hefur það verið vonlaust að komast frá Bandaríkjunum beint til Kúbu í Karabíska hafinu og þeir sem Kúbu viljað heimsækja orðið að fljúga frá Kanada ellegar Evrópu. En nú er öldin önnur og hægt að fljúga stystu leið frá tveimur flugvöllum í Flórída frá og með haustinu.

Kúba frá Flórída er nú í boði en gróf leit leiddi í ljós að flugmiði fram og til baka kostar milli 55 og 76 þúsund krónur
Mun samstarfsaðili Icelandair, JetBlue, bjóða áætlunarferðir frá Fort Lauderdale til Havana á Kúbu frá 12. september næstkomandi en strax í vor hófust fyrstu áætlunarferðirnar frá Miami flugvelli.
Þó hefur verið um hríð mögulegt að fljúga frá Puerto Rico, Cayman eyja og Bahamas eyju til Kúbu auk annarra staða í Mið- og Suður Ameríku en það er flóknara mál.
Þar með er þó ekki hundrað prósent að Íslendingar í Flórída geti svo auðveldlega komist í þessar ferðir en það er sannarlega þess virði að prófa og ritstjórn Fararheill veit um tvo einstaklinga sem komist hafa vandræðalaust frá Miami og til baka. Enn eru þó töluverð takmörk á því hverjir geta heimsótt Kúbu frá Bandaríkjunum og er umræddum ferðum sérstaklega beint að þeim er búa í Bandaríkjunum og rekja ættir til Kúbu.
Ritstjórn hefur ítrekað bent fólki á að reyna að heimsækja eynna áður en Bandaríkjastjórn ákveður alfarið að leyfa takmarkalausar heimsóknir til Kúbu sem allt útlit er fyrir að verði fyrr en síðar. Með tilliti til nálægðar við Key West í Flórída og áhrifa bandarískra ferðamanna á öðrum eyjum í karabíska hafinu má slá föstu að Kúba verður aldrei söm í kjölfar fjöldatúrisma bandarískra ferðamanna.






