Þeir aðilar hjá ferðaskrifstofunni Úrval Útsýn sem sjá um að Íslendingum bjóðist hvað best tilboð í ferðum sínum eru ekki að standa sig ýkja vel.
Ritstjórn Fararheill.is sparaði sér rúmar hundrað þúsund krónur með tíu mínútna netyfirlegu umfram þá viðskiptavini ÚÚ sem hyggjast kaupa siglingu um karabíska hafið í nóvember.
Býður Úrval Útsýn slíka ferð 11. – 24. nóvember og það á hinu stórglæsilega farþegaskipi Oasis of the Seas sem ekki aðeins er stærsta farþegaskip heims heldur og fær bestu einkunnir allra skipa í sínum stærðarflokki meðal farþega.
Ferðin er ódýrust miðað við tvo í gluggalausum innanklefa á 713.800 krónur auk fimm nátta á hótelum í Orlando með morgunverði fyrir og eftir ferðina. Vikutúrinn með skipinu skemmtilegur enda stoppað á forvitnilegum eyjum á borð við Haítí og Jamaíka auk Cozumel í Mexíkó en lagt frá og endað í Fort Lauderdale.
Flugsæti í almennu farrými til Orlando umræddan tíma með Icelandair eru uppseld á þessum tímapunkti en engu að síður fær ritstjórn Fararheill.is sér flug með betri sætum, gistir á sömu hótelum með sama morgunverði, siglir sömu siglingu og gerir það 200 þúsund krónum ódýrara en Úrval Útsýn býður sínum farþegum.
Fást flugsæti í svokölluðu economy comfort á samtals 282.560 krónur, sem reyndar er galið verð fyrir flugsæti, fyrir tvo fram og til baka til Orlando. Fimm nætur á Florida Mall hótelinu fást á 78.115 krónur. Rúta frá Orlando til Fort Lauderdal kostar tvo einstaklinga átta þúsund krónur og siglingin sjálf fæst á vef Royal Caribbean skipafélagsins í gluggalausu herbergi á 238.414 krónur með sköttum og gjöldum. Samtals kostar ferðin svona fyrir tvo alls 607.089 krónur miðað við gengið 8. ágúst 2011.
Munar því alls 106.711 krónum ferðist tveir saman.
Til umhugsunar: Það er matur innifalinn í velflestum siglingum um karabíska hafið en aðeins að vissu leyti. Matur á flottustu stöðunum, veitingastaðirnir eru margir um borð, mun kosta aukalega en afþreying velflest er ókeypis. Hafa skal í huga að í ferð Úrval Útsýn er fararstjóri með í för og ekki síður að farþegar eru mun betur tryggðir hjá ferðaskrifstofunum en ferðist þeir á eigin spýtum.
Beðist er velvirðingar á að skatta, gjöld og þjórfé skipafélagsins vantaði inn í fyrri útreikninga sem sýndu að verðmunurinn skjagaði í 200 þúsund krónur.






