Tíðindi

Hákarlaviðvörun á frönsku rivíerunni

  02/08/2011desember 4th, 2014No Comments

Það er ekki oft sem strandgestir við Miðjarðarhafið þurfa að óttast hákarla en ástæða þótti til að gefa hákarlaviðvörun á St.Tropez á frönsku rivíerunni um helgina eftir að hákarl eða hákarlar sáust nokkrum sinnum á sveimi undan ströndinni.

Kom ekki til þess að ströndum væri lokað á svæðinu og hefur hákarlsins ekki orðið vart eftir helgina þó kafari hafi séð minnst einn berum augum þrívegis á laugardag og sunnudag. Gat kafarinn ekki áttað sig á tegundinni en sagði dýrið minnst tveggja metra langt.

Má eiginlega furðu sæta hversu sjaldgæfar hákarlaárásir eru í Miðjarðarhafinu miðað við þær tugi milljóna sem þar svamla meðfram velflestum ströndum öll sumur í Evrópu.

Samkvæmt sérstakri alþjóðlegri skrá sem haldin er yfir slíkar árásir á heimsvísu er aðeins vitað um 38 slíkar árásir en í þeim hafa 18 einstaklingar látið lífið.

Síðasta dauðsfallið vegna slíkrar árásar við Miðjarðarhafið varð við strönd Grikklands árið 1984.