Tíðindi

Vonbrigði við píramídana á Giza

  02/08/2011desember 4th, 2014No Comments

Margt ágætt má segja um Egypta og land þeirra en ef marka má umsagnir ferðafólks sem heimsækja hina miklu píramída á Giza verða þeir að fara að taka til í sínum ranni. Bókstaflega.

Liggur við að önnur hver umsögn um heimsókn til Giza, þar sem píramídarnir mikilfenglegu standa, á miðlum á borð við Tripadvisor eða Virtual Tourist fjalli meira um skít, drullu og rusl á staðnum en þessi undur mannkyns sem píramídarnir sjálfir eru.

Og viðurkenna verður að geti Egyptar ekki haft hreint í kringum eitt mesta undur heims og þann áfangastað sem skapar milljarða árlega í gjaldeyristekjur fyrir landið eru þeim sennilega allar bjargir bannaðar.

Ekki heldur er gott afspurnar að önnur stór kvörtun ferðafólks er hversu mjög Kaíró færist árlega nær píramídunum og er hreint ekki langt í að þeir verði einfaldlega í úthverfi borgarinnar ef fram heldur sem horfir. Það er einhvern veginn ekki að gera sig að næsti bær við glæsileg 3.800 ára gömul mannvirkin sé forljótt fátækrahverfi og amerískir skyndibitastaðir.