Tíðindi

Sjötíu prósent velja Icelandair

  02/08/2011desember 4th, 2014No Comments

Stór meirihluti Íslendinga kýs að fljúga og ferðast með flugfélaginu Icelandair fremur en Iceland Express samkvæmt nýrri könnun Fararheill.is.

Leikur á því enginn vafi því 70 prósent þátttakenda í vefkönnun Fararheill segjast taka Icelandair framyfir Iceland Express.

Einungis 16 prósent eru á öndverðum meiði og fljúga fremur með því síðarnefnda.

Þá vekur og athygli að 14 prósent kysu helst að fljúga með öðrum aðilum en þessum tveimur.

Metþátttaka var í þessari könnun en 662 aðilar greiddu þar atkvæði sitt.

Fara því kannanir Fararheill.is að skjaga upp í þann fjölda sem hefðbundnar og viðurkenndar skoðanakannanir notast við. Engu að síður er vefkönnunin ekki vísindaleg á neinn hátt þó niðurstaðan gefi nokkrar vísbendingar.

458 þeirra sem svöruðu spurningunni „Icelandair, Iceland Express eða hvorugt“ lögðu Icelandair til atkvæði sitt meðan 109 aðilar voru ekki í vafa að vænlegra væri að fljúga með Iceland Express. 95 telja hvorugt flugfélag þess virði að eiga viðskipti við.

Niðurstaðan verður og að skoðast í því ljósi að mikið hefur verið rætt um ófarir ferðasalans Iceland Express undanfarnar vikur og hefur það vafalítið haft áhrif á niðurstöðuna.

Ritstjórn þakkar öllum kærlega fyrir þátttökuna og bendir á að ný könnun er nú komin á vefinn.