Ekki eru margir dagar síðan ritstjórn Fararheill gaf ferðaskrifstofunni Heimsferðum plús í kladdann fyrir að bjóða Íslendingum að nýju upp á ferðir til Kúbu í vetur jafnvel þó aðeins væri um eina einustu ferð að ræða.
Við nánari athugun er þó verðlagning Heimsferða út úr öllum heimsins kortum eins og í ljós kom með einföldum samanburði.
Er ferð Heimsferða aðeins sex dagar og sjö nætur og er hægt að skipta þeim tíma milli höfuðborgarinnar Havana og strandlífsins á Varadero. Fararheill telur þetta reyndar afspyrnu takmarkaðan tíma miðað við 20 stunda flugtíma og millilendingu í Kanada báðar leiðir.
Að því frátöldu er ódýrasta tvískipta ferðin í boði, gist á Parque Central með morgunverði og Arenas Blancas með öllu inniföldu, hjá Heimsferðum á 549.900 íslenskar krónur fyrir tvö. Ef við leikum okkur aðeins með tölur þá kostar hver einasti dagur í ferðinni 78.557 krónur fyrir par eða hjón.
Víkjum nú sögunni að gamni til Bretlands þar sem ferðaskrifstofan Holiday Place er með sértilboð til Kúbu og höfum í huga að breska pundið er hreint ekkert yndislegt gagnvart íslensku krónunni.
Tilboð Holiday Place hljóðar upp á tvískipta þrettán daga ferð þann 7. desember og því eðaltími til að sleikja sól með aðrir landsmenn stressa sig yfir jólunum heima. Eru 13 dagar að mati ritstjórnar ljómandi langur tími með tilliti til langs ferðatíma.
Sú ferð er einnig tvískipt milli Havana og strandbæjarins Guardalavaca. Er dvalist tíu daga á sólarströndinni með öllu inniföldu en þrjá daga í Havana með morgunverði. Er gist á svipuðum hótelum og Heimsferðir bjóða héðan.
Þessi ákveðna ferð er í boði frá Gatwick í London fyrir tvo saman á 265.626 íslenskar krónur miðað við gengi dagsins 31. júlí 2011.
Flugferðir héðan þennan tíma fást ódýrastar með Iceland Express og geta tveir komist til London fyrir 79.058 krónur.
Með þessum hætti er komist í þrettán daga ferð til Kúbu í heildina fyrir 344.684 krónur alls fyrir tvo. Það þýðir að hver dagur fyrir par eða hjón kostar 26.514 krónur.
Mismunurinn á sjö daga ferð Heimsferða frá Íslandi og þrettán daga ferð Holiday Place frá Bretlandi er því litlar 205.206 íslenskar krónur.
Og það þrátt fyrir svipuð hótel, mun fleiri daga og þráðbeint flug frá Bretlandi í stað millilendingar í Kanada. Og hvað er eðlilegt við það…






