Enn einn daginn eru samgöngur úr skorðum á ýmsum stöðum í Evrópu. Kyngir niður snjó í Skotlandi og Frakklandi og hafa lestar- og flugsamgöngur farið nokkuð úr skorðum.
Loka þurfti Charles de Gaulle flugvelli í Frakklandi í morgun tímabundið og ekki útilokað að það gerist aftur. Þá geysa stormar á Spáni og í Portúgal.
Verra er að veðurútlitið er ekki ýkja bjart framyfir helgina ef snjór er ekki á óskalistanum. Meiri snjókomu er spáð í Frakklandi, Belgíu og Hollandi en draga á úr veðurofsanum sunnar í álfunni á morgun.






