Fargjöld Icelandair til Barcelona þetta sumarið hækka jafnt og þétt og nú er töluvert ódýrara fyrir ferðaþyrsta að bóka far með Wow Air eða spænska flugfélaginu Vueling.

Ljúf og góð er Barcelona en þangað misdýrt að fljúga

Ljúf og góð er Barcelona en þangað misdýrt að fljúga

Fararheill framkvæmdi verðkönnun á flugfargjöldum til þessarar vinsælu spænska borgar en að þessu sinni leituðum við að lægsta mögulega fargjaldi aðra leiðina út í júní, júlí og ágúst með öllum sköttum, gjöldum og einni 20 kílóa tösku með.

Við framkvæmdum sams konar úttekt um miðjan desember sem sjá má hér og sést glögglega mikill munur á fargjöldum og það upp á við auðvitað. Þó er sá munur á að í fyrri könnun var ekki farangur tekinn með í reikninginn eins og nú er.

Niðurstaðan er að lægstu fargjöld Wow Air og Vueling hafa hækkað lítillega frá desember og reyndar furðu lítið á þremur mánuðum. Fargjöld Icelandair hafa hins vegar hækkað duglega og um heil 75% í júní svo dæmi sé tekið. Það hlýtur að vera þessi verðbólga sem allir eru að tala um.