Með vaxandi ferðalögum fólks með lággjaldaflugfélögum sem undantekningarlítið bjóða öll upp á glænýjar eða nýlegar flugvélar hefur krafan um að ferðast alltaf með nýrri vélum aukist jafnt og þétt um heim allan.

Töluverður munur er á aldri þeirra véla sem lenda og taka brott frá Keflavík.

Töluverður munur er á aldri þeirra véla sem lenda og taka brott frá Keflavík.

Það er skiljanlegt og eðlilegt. Sama gildir um ferðalög í háloftunum og ferðalög á landi. Bílaleiga með 20 ára gamla bíla eða rútufyrirtæki með 20 ára gamlar rútur eru varla samkeppnishæfar við nýja bíla og rútur samkeppnisaðila. Litlu breytir hversu vel er farið með bílana. Fólk vill almennt ekki gamalt þó vissulega séu þeir til sem láta slíkt sig engu skipta.

En hver er meðalaldur véla þeirra flugfélaga sem reglulega fljúga hingað til lands? Það er áleitin spurning nú þegar sprenging hefur orðið í fjöldi þeirra sem fljúga til landsins og lítið lát er þar á. Góðu heilli heldur flugvefurinn Airfleets.net úti aldeilis ágætum vef þar sem finna má meðalaldur flugflota velflestra stærri og þekktari flugfélaga. Samkvæmt þeirra listum er þetta niðurstaðan. Kemur ekki á óvart að lággjaldaflugfélög verma hér efstu sætin með nýjustu vélarnar.