Það er með nokkrum eindæmum hversu sjaldan þær ferðaskrifstofur sem auglýsa skíðaferðir hérlendis láta oft hjá líða að lista verð á skíðapössum sem eru jú nauðsynlegir ætli fólk sér á skíði eða bretti í skíðaferðum.
Könnun Fararheill.is leiðir í ljós að aðeins Vitaferðir og GB Ferðir tiltaka einhver skíðapassaverð í ferðum sínum. Vita þó aðeins að hluta til og GB Ferðir linka á erlenda síðu
Úrval Útsýn og Heimsferðir eru hins vegar sek um að sleppa því alfarið í auglýsingum sínum að minnast á verð á dagpassa í brekkurnar þó reyndar megi finna á heimasíðu þeirra fyrrnefndu tengil á verðskrá á ensku. Miðað við að skíðapassar í fyrsta flokks brekkur eru tiltölulega dýrir væri það góð þjónusta og reyndar lágmarksþjónusta að láta þess getið við auglýsingar sínar að mati ritstjórnar Fararheill.is. Þá virkar ekki linkur ÚÚ á verðlista vegna Selva Val Gardena svo fólk þarf sjálft að fara að leita.
Nema Fararheill.is gerði það fyrir þig.
* Verð miðast við tímaramma auglýstra ferða.
Madonna di Gampiglio
- Dagspassi fyrir fullorðna: 5.500 krónur
- Dagpassi fyrir börn og unglinga: 2.700 krónur
Selva Val Gardena
- Dagspassi fyrir fullorðna: 6.000 krónur
- Dagspassi fyrir unglinga: 4.200 krónur
Val di Fiemme
- Dagpassi fyrir fullorðna: 6.000 krónur
- Dagpassi fyrir unglinga: 4.200 krónur
Flachau
- Dagspassi fyrir fullorðna: 6.400 krónur
- Dagspassi fyrir unglinga: 5.200 krónur
Lungau
- Dagspassi fyrir fullorðna: 5.700 krónur
- Dagspassi fyrir ungling: 4.800 krónur
Whistler
- Dagspassi fyrir fullorðinn: 10.100 krónur






