Tíðindi

Lissabon aftur best til borgarferða

  24/10/2010október 25th, 2021No Comments

Portúgalska borgin Lissabon var um helgina enn á ný valin best til borgarferða í Evrópu og fékk gullverðlaun fyrir af hálfu World Travel Awards. Borgin tók líka þennan heiður í fyrra.

Aðrar borgir sem til greina þóttu koma af hálfu þeirra 183 þúsund kjósenda sem þátt tóku í vali WTA voru Istanbúl í Tyrklandi, Madríd á Spáni, London í Englandi, Osló í Noregi, Tallinn í Eistlandi, París í Frakklandi, Róm og Feneyjar á Ítalíu og Prag í Tékklandi.

Fararheill.is tekur fullum hálsi undir hér. Skemmtilegri borgir eru vandfundnar og ekki er síður gott fyrir krónueigendur að ritstjórn hefur hvergi í Evrópu fengið jafn mikið fyrir peningana eftir bankahrunið hérlendis.

Allt um Lissabon hér.