Tíðindi

Útsala hjá Iceland Express

  24/10/2010október 25th, 2021No Comments

Flugfélagið Iceland Express boðar nú fargjaldaútsölu næstu dagana samkvæmt nýjum auglýsingum.

Eiga viðskiptavinir félagsins að eiga þess kost næstu daga að kaupa fargjöld til Evrópu frá 9.900 krónur og til Bandaríkjanna frá 19.900 krónur.

Hefst sala á þessum fargjöldum á hádegi þann 25. október og munu tilboðsfargjöld gilda til velflestra áfangastaða flugfélagsins.