Tíðindi

Sjötti flugvöllur London opnaður

  10/03/2012desember 16th, 2013No Comments

Pomp og prakt voru lykilorðin fyrr í vikunni þegar sjötti alþjóðaflugvöllur London tók til starfa. Southend flugvöllur er í 45 kílómetra fjarlægð frá London sjálfri en það er í sjálfu sér ekki lengra frá en Luton eða Stansted flugvellir sem einnig teljast til flugvalla borgarinnar.

Lengsta göngubryggja heims finnst í sjávarborginni Southend en þar er nú nýjasti flugvöllur London

Tvö flugfélög hafa þegar tilkynnt að þau hyggist nota Southend flugvöll. easyJet mun fljúga héðan til Hollands, Spánar og Portúgal og írsku flugfélögin Aer Arann og Air Lingus til smærri flugvalla á Írlandi.

55 mínútur tekur að fara frá Southend að Liverpool Street stöðinni í miðborg London með lest en allt að átta slíkar fara á milli á hverri klukkustund. Er það fyrirtækið Great Anglia sem sér um þær ferðir. Önnur leiðin til London kostar 3.200 krónur miðað við gengi í mars 2012.

Ólíkt öðrum flugvöllum er til London heyra stendur flugvöllurinn og borgin Southend við sjó og er vinsæll sumardvalarstaður.