Tíðindi

Denver heillar útivistarfólkið

  11/03/2012desember 23rd, 2013No Comments

Sala ferða til Denver, nýjasta áfangastaðar Icelandair, gengur vel og sérstaklega er áhuginn mikill hjá íslensku útivistar- og íþróttafólki.

Þetta staðfestir Guðjón Arngrímsson, fjölmiðlafulltrúi Icelandair, við Fararheill.is en Denver bættist við leiðakerfi flugfélagsins í haust þó formlega hefjist ferðir þangað ekki fyrr en næstkomandi maí.

Fyrst og fremst er áhuginn meðal Bandaríkjamanna sjálfra. Bæði að heimsækja Ísland en ekki síður fara áfram til Evrópu.

Denver og nágrenni er sannarlega úrvals útivistarsvæði með Klettafjöllin í næsta nágrenni og bæði göngutúrar og hjólreiðar geysivinsælar meðal heimamanna. Þá er ekki langt að fara í fyrsta flokks skíðasvæði og þó nokkrir golfvellir finnast hér líka.

Þá er verðlag í Denver ekki verra en í Boston eða New York nema síður sé og fjöldi verslana út um alla borg. Ef eitthvað er er skemmtilegra að versla í Denver en mörgum öðrum borgum Bandaríkjanna því þar er raunverulega gert ráð fyrir gangandi vegfarendum í miðbænum.