Stokkhólmur og Berlín eru þær tvær evrópsku borgir með mesta hlutfallslega fjölgun ferðamanna í álfunni síðastliðin fimm árin samkvæmt nýrri úttekt. Það er hins vegar borgin í þriðja sætinu sem vekur allra mesta athygli. Ljublana í Slóveníu.
Ráðgjafafyrirtækið RBSC hefur tekið saman lista yfir þær borgir Evrópu sem hlutfallslega hafa aukið ferðamannafjölda mest á síðustu fimm árum og þar nær höfuðborg Slóveníu þriðja sætinu þó borgin komist ekki ofarlega með tilliti til heildarfjölda gistinátta.
Ekki aðeins eru hlutfallslega flestir að heimsækja Ljublana síðustu fimm árin heldur dregur engin önnur evrópsk höfuðborg fleiri erlenda ferðamenn til sín. Heil 96 prósent af seldum gistináttum á hótelum og gististöðum Ljublana brúkuðu erlendir ferðamenn meðan heimafólk notaði aðeins fjögur prósent.
Ekki þarf ýkja fróðan mann til að átta sig á auknum vinsældum Ljublana. Hún státar af öllu því yndislega sem evrópsk miðaldaborg getur státað af auk þess sem verðlag í Slóveníu er nokkuð lægra en gengur og gerist í mörgum nágrannaríkjum og borgum.






