Tíðindi

Haus á góðan kodda undir tvö þúsund krónum

  09/03/2012janúar 9th, 2015No Comments

Ok. Við þekkjum þetta öll (nema ef vera skyldu Sigurður Einarsson, Lárus Welding og líklega Björgólfur Thor). Hugurinn leitar út en pyngjan leyfir engin stórkostlegheit og allar borgir eru miklu dýrari en talið var í upphafi.

En þegar neyðin er stærst og allt það, þá er jú hjálpin næst þó margir farþegar Titanic gefi þessu orðskrípi falleinkunn.

Með linnulitlu gúggli og heimsóknum á stærstu hostelvefi heims hefur tekist að rúlla saman nokkrum gististöðum í dýrari erlendum borgum þar sem hægt er að halla haus án þess að búa eins og útigangsmaður og greiða undir jafnvel undir tvö þúsund krónum fyrir nóttina. En, nota bene, ekki í eigin herbergi.

* Verð miðast við gengi krónu í mars 2012. Til samanburðar má nefna að Kex hostel á Íslandi býður ódýrast kojuherbergi á 3.200 krónur á mann og það aðeins yfir vetrartímann.

  • OASIS HOSTELS  > Salzburg, Sevilla, Lissabon, Granada  >  Hreint ágætustu gististaðir í tiltölulega dýrum borgum ef Lissabon er frátalin. Ekki bara næsta lúsuga hostel heldur eru allir þeirra staðir tiltölulega miðsvæðis í borgunum og sum jafnvel bjóða lúxus eins og heitan pott og sundlaug. Verð á mann í fjögurra manna kjouherbergi 1.800 krónur.
  • ST.CHRISTOPHER´S INN   >  Edinborg, London, Prag, Brugge, Amsterdam, París, Berlín, Brighton  >  Það er aðeins ein ástæða fyrir góðu gengi þessarar hostelkeðju: Viðskiptavinir eru ánægðir og segja það öllum öðrum. Verð misjöfn en kjouherbergin mörg hver undir tvö þúsund krónum.
  • HOSTEL MOSTEL  >  Sofía, Veliko Tarnovo, Plovdiv  > 98 prósent viðskiptavina hundrað prósent sáttir hér og hefur þetta gistihús verið valið besta litla hostel heims og ítrekað meðal þeirra allra bestu í austur Evrópu.
  • SANT JORDI  >  Barcelona  >  Besta hostel Spánar og ítrekað meðal þeirra efstu á heimsvísu er Sant Jordi sem rekur sex gistihús í hinni bráðskemmtilegu borg Barcelona. Meðalverð í allgóðri koju 1.700 krónur.