Dálítið merkilegt. Fyrirtækið sneisafullt af flottum viðskipta-, tækni- og markaðsfræðingum en tekur samt aðeins við sér þegar aðrir sjá sér leik á borði. Minnir dálítið á allt „snjalla“ bankafólkið okkar í aðdraganda hrunsins…

Góð hugmynd að fjölga ferðum til Madríd. Dohhhh

Hvaða fyrirtæki erum við að tala um? Það heitir Icelandair og er illu heilli að mestu í eigu lífeyrissjóða landsmanna. Mín og þín öðru nafni. Illu heilli sökum þess að fyrirtækið hefur skíttapað peningum síðasta árið svo þú og ég fáum minna í ellilífeyri en ella.

Icelandair ætti að fara á slaka á í að ráða megamenntaða sérfræðinga og bjóða okkur hér feit og mikilvæg störf. Ekki eins og við höfum ekki bent fyrirtækinu á sex þúsund leiðir til að bæta þjónustu og ná forskoti gegnum tíðina…

Við höfum til dæmis ítrekað skammað Icelandair gegnum tíðina fyrir að skaufast til Anchorage í Alaska og Halifax í Kanada á sama tíma og mjög mislukkuð lággjaldaflugfélög – Primera Air, Wow Air og Iceland Express, hafa boðið landanum upp á áætlunarflug til Kanarí og Alicante. Bara tveir mikilvægustu áfangastaðir Íslendinga gegnum tíðina en aldrei nokkurn tímann hefur feitum forstjóra Icelandair dottið í hug að bjóða reglulegar ferðir. Neibbs, frekar að fljúga átta sinnum á dag hálftómum vélum til og frá London eða Anchorage eða Halifax…

Nú lesum við á spænskum ferðaþjónustuvef fréttir þess efnis að Icelandair ætli að fjölga ferðum sínum milli Keflavíkur og Madríd um 60% í sumar. Þangað verður flogið 42 sinnum þetta árið í stað 26 ferða í fyrra.

Gott mál í alla staði. Fyrirtækið væri ekki að fjölga ferðum nema áhugi væri til staðar og þá sérstaklega Spánarmegin.

En megasnjallir fræðingar Icelandair eru bara átta mánuðum of seinir. Eða hvers vegna hóf lággjaldaflugfélagið Norwegian beint flug milli Keflavíkur og Madríd strax í janúar síðarliðnum?

Kannski vegna þess að Norðmennirnir voru búnir að reikna út að það margborgaði sig löngu áður en fræðingar Icelandair gátu fundið Madríd á korti. Samkvæmt upplýsingum okkar frá Norwegian er sætanýting 98 prósent í vélum Norwegian til Íslands og til baka frá Madríd og glögglega má sjá á ferðum flugfélagsins fram í tímann að setið er um sætin.

Hvers vegna tók það Icelandair lengri tíma en erlend lággjaldaflugfélög að setja saman tvo og tvo? Getur verið að „sérfræðingastóðið“ sé ekki með ýkja mikið vit í kolli eftir allt saman…