Viti menn! Ferðaskrifstofan Vita býður þennan daginn upp á tvö „48 klst hraðtilboð“ eins og þar stendur. Flug fram og aftur til Kanarí og Alicante á miklum kostakjörum.

Úha! Fantatilboð til Alicante. En er það svo í raun? Skjáskot
Hólímóli, nú þarf að hafa hraðar hendur til að verða sér úti um kostakjör ferðaskrifstofunnar Vita á flugi til og frá Kanarí og Alicante. Þetta eru nefninlega þeir tveir staðir sem eru hvað mest í metum hjá frostbitnum, fölbleikum ferðamönnum frá Fróni 🙂
Flug til Kanarí, Gran Canaria, og heim aftur í apríl með handfarangur og tösku fyrir litlar 39.900 krónur og til Alicante og heim aftur í sama mánuði niður í 24.900 krónur. Þvílík megaútsala kann einhver að hugsa og hoppar rakleitt á vef Vita og bókar ferð í sól og sælu á nóinu.
En sem fyrr hjá þessu dótturfyrirtæki Icelandair er flagð undir fögru. Þegar á hólm er komið kostar flug fram og aftur til Alicante 34.900 krónur og flugið fram og aftur til Kanarí 49.900 krónur. Það helgast af smáa letrinu sjáðu til. Smáa letrinu þar sem auglýst er súperverð plús tólf þúsund vildarpunktar.
Enga hugmynd hvers vegna Neytendastofa er ekki að sekta Vita á fimm mínúta fresti. Allt sem þar er auglýst kostar X plús fleiri þúsund vildarpunkta!!! Og hver er að safna vildarpunktum árið 2018? Gallinn líka sá að lög landsins kveða á um að lokaverð á vöru eða þjónustu skuli vera sýnilegt frá upphafi vafningalaust. X verð plús vildarpunktar er ekki vafningarlaust.
Nóg um það.

„Tilboð“ er ekki gott bara af því að söluaðilinn segir það 🙂 Skjáskot
Verra þó að hvorki flug til og frá Alicante á 35 þúsund né flug til og frá Kanarí á 50 þúsund er í grennd við það sem kallast mætti flott tilboð. Aðeins vika síðan ein úr ritstjórn bókaði flug fram og aftur til Alicante í apríl með handfarangur plús tösku með Norwegian fyrir heilar 22 þúsund krónur. Bara 60 prósent lægra verð en tilboð Vita hljóðar upp á.
Þegar þetta er skrifað má finna flug aðra leið til Kanarí með Wow Air með handfarangur og tösku meðferðis niður í 22 þúsund krónur og Primera Air gerir enn betur og býður sama pakka á 21 þúsund krónur. Reyndar bjóða hvorugt flugfélaganna flug heim aftur því bæði hætta flugi til Kanarí í byrjun apríl en punkturinn sá að það sem Vita kallar hraðtilboð þessa stundina er hærra en normalt verð á flugi hjá Wow Air og Primera Air til Kanarí.
Ergo: ekkert merkilegt stöff 😉







