„Heil og sæl þið hjá Fararheill. Þakkir fyrir frumlegan og á flestan hátt afar skemmtilegan og fróðlegan vef þó reyndar mér finnist þið oft fara offari gagnvart tilteknum fyrirtækjum og einstaklingum. Mig langaði aðeins að benda ykkur á að sá flugtími sem okkur stendur til boða til vinsælla áfangastaða eins og Gautaborgar með Icelandair þar sem lent er fimm eða sex um morguninn er vægast sagt hræðilegur. Ekkert hótel eða gististaður er að hleypa þér inn fyrr en um hádegi í allra fyrsta lagi svo fólk sem ekki á ættingja eða vini á staðnum þarf að gera sér að góðu að dóla í borginni í sex til átta klukkustundir hið minnsta eftir næturflug áður en hægt er að komast inn á herbergi til hvíldar. Ekki til eftirbreytni finnst mér og ég mæli alls ekki með þessu fyrir neinn.“
Axel Ólafsson

Eina flugfélagið sem býður ömurlegasta lendingartíma heims í Gautaborg er Icelandair. Viðskiptavinir annarra flugfélaga lenda á „eðlilegum“ tíma.
Sæll Axel og takk fyrir skeytið. Það er sannarlega rétt hjá þér að flugtími Icelandair til Gautaborgar er eins langt frá því að vera ljúfur og framast er unnt.
Því miður er Icelandair samt nokk sama um Íslendinga og nægir að benda á einokun og megaverðlagningu flugfélagsins á okkur hér þegar samkeppni var engin fyrir tíu til fimmtán árum síðan. Það er ekki lengra en sextán ár eða svo síðan ENGINN komst heim til Íslands um jólin frá London og út aftur eftir áramót fyrir minna en HUNDRAÐ ÞÚSUND KRÓNUR að meðaltali. Á þeim tíma var hundrað þúsund kallinn töluvert verðmeiri en nú er og meðal mánaðarlaun almennings rétt rúmar hundrað þúsund krónur eftir skatta.

Stjórnarformaður og forstjóri Icelandair. Hvernig dettur fólki í hug að þeim sé ekki sama um Íslendinga?
Skjáskot
Ekki hefur þetta batnað mikið nema fargjöldin en það er útaf samkeppni og ekki vegna velvilja stjórnenda Icelandair. Hver sá sem gúgglar lendingar á Landvetter flugvellinum við Gautaborg kemst strax að því að EKKERT EINASTA flugfélag annað en Icelandair býður viðskiptavinum sínum upp á komutíma um miðja nótt eða svo gott sem. Samkvæmt okkar óformlegu könnunum undanfarna daga dettur engu öðru flugfélagi en Icelandair í hug að henda farþegum út klukkan fimm eða sex að morgni. Næstu flugfélög á eftir eru að lenda á milli klukkan sjö eða átta og mesta traffíkin eftir það.
Rétt er hjá þér Axel að þetta þýðir að ef vinir eða ættingjar eru ekki að taka á móti þér ertu í vondum málum og guð hjálpi þér ef börn eru með í för. Eða hvernig á að hafa ofan af fyrir börnum fyrir allar aldir í ókunnri borg í hálfan sólarhring eða svo.
Því miður er þetta ekkert að fara að breytast. Stærsti markhópur Icelandair er ekki Íslendingar heldur millilandalið að vestan og svo „alvöru“ Evrópulið á leið vestur. Við skítapakkið megum éta það sem úti frýs hjá Icelandair og borga fullt verð fyrir að lenda í borgum Evrópu um miðja nótt.
Sem segir okkur kannski það að HÆTTA að versla við þetta skítabatterí eins og við höfum oft og ítrekað lagt til við landann. Algjörlega óboðlegur lendingartími í Gautaborg er bara toppurinn á ísjakanum í því tilliti.







