Þeir eru allnokkrir fjárfestingarsjóðirnir sem farnir eru að veðja á niðurgang norska lággjaldaflugfélagsis Norwegian. Níu mánuði síðasta árs og fyrstu mánuði þessa árs hefur norska fyrirtækið beinlínis blætt peningum.

Norwegian þarf að lagfæra ýmislegt í rekstrinum til að forðast gjaldþrot að mati fræðinga.

Norska lággjaldaflugfélagið hefur gert æði margt rétt síðustu árin. Svo mjög að fyrirtækið slefar nú í easyJet og Ryanair sem helsta lággjaldaflugfélag Evrópu.

En engin er sólin án þess að ský beri fyrir á köflum. Bæði norskir miðlar og aðrir sem sérhæfa sig í fregnum úr flugheimum greina nú frá erfiðum rekstri Norðmannanna. Að frátöldum þremur mánuðum í fyrra var bullandi tap á rekstri Norwegian og allt þetta ár hefur tapreksturinn aukist jafnt og þétt. Til eru þeir sem segja að fyrirtækið geti jafnvel horfið undir græna torfu áður en árið 2018 líður undir lok.

Það væri synd með stóru essi að okkar mati. Norwegian er að bjóða alveg kostuleg fargjöld á milli staða og þar á meðal til og frá Íslandi. Það er ekki innan Evrópu sem fyrirtækið er að blæða peningum heldur gríðarlegur vöxtur og sú ákvörðun að víkka sjóndeildarhringinn með langflugi til Norður-, Mið- og Suður Ameríku.

Með öðrum orðum, þá er orsök tapreksturs fyrirtækisins að fara út í langflug í stað þess að moka inn seðlum á styttri flugleiðum og láta þar við sitja. Fyrirtækið var að leggja tugmilljarða árlega í bankann þegar best lét með dúllerísferðum innan Evrópu en það dugði ekki til. Mikill vill jú alltaf meira nema hafa vit í kolli og svo virðist sem forstjóri Norwegian hafi látið peninga leiða sig framyfir hyldýpið. Það er jú ástæða fyrir að hvorki Ryanair eða easyJet austanhafs né JetBlue eða Southwest vestanhafs hafa tekið stökkið í langferðir. Langferðir stemma nefninlega illa við lággjaldaflugfélög og þeirra rekstrarmódel.

Best að láta vera að bóka mikið hjá Norwegian frá og með næsta hausti. Fyrirtækið gæti verið á leið í gröfina…