Það er nýr aðili að bjóða flug frá Keflavík til London og auðvitað sömu leið til baka. Lægstu fargjöld þessa nýja aðila? Fimmtíu prósent lægri en Wow Air býður sömu leiðina.

Wizz Air mjög að færa út kvíar til og frá Íslandinu góða.

Nýr aðili er kannski fullmikið sagt. Hér er um að ræða ungverska lággjaldaflugfélagið Wizz Air sem hefur um skeið boðið okkur beint flug til Póllands og Lettlands. En líkt og lággjaldaflugfélagið Norwegian sjá Ungverjarnir sóknarfæri í fleiri flugleiðum héðan til Evrópu en íslensku flugfélögunum hefur dottið til hugar að bjóða. Wizz Air býður þetta sumarið hvorki fleiri né færri en ELLEFU spennandi áfangastaði héðan.

Einn nýrra áfangastaða er London og nánar tiltekið til London Luton sem er einn fimm flugvalla sem teljast tilheyra höfuðborg Bretlands. Þangað flýgur easyJet líka reglulega til og frá Íslandi.

Töluverða athygli vekur að lægstu fargjöld Wizz Air þegar þetta er skrifað eru töluvert undir því sem gengur og gerist þessa leiðina. Sem dæmi um það er lægsta fargjald Wow Air fram og aftur til London í júnímánuði á 10.997 krónur. Lægsta fargjald Wizz Air í sama mánuði kostar manninn hins vegar 7.200 krónur. Það er rúmlega 50% verðmunur. Sé miðað við Icelandair hoppar verðmunur vel yfir 100%.

Hér auðvitað ekkert innifalið né taska meðferðis en ef vera kann að þér finnist 7.200 krónur okurverð á flugi til og frá London geturðu lækkað það verð frekar ef þú skráir þig í sérstakan vinaklúbb Wizz Air. Það kostar nokkrar evrur en það kemur til baka um leið og flug er bókað. Í ofangreindu tilfelli lækkar verðið úr 7.200 krónum niður í 4.900 krónur BÁÐAR LEIÐIR!!!

Það, ágætu lesendur, er svipað verð og Wow Air heimtar fyrir aðra leiðina 😉

PS: London ekki að heilla? Aðrir áfangastaðir sem Wizz Air býður upp á í sumar eru Prag, Vilníus, Ríga, Gdansk, Wroclaw, Kraká, Varsjá, Poznan, Katowice, Búdapest og Vín. Þetta verður gott sumar fyrir ferðaþyrsta 🙂