Heimur versnandi fer og verðlag á hótelum líka. Fleiri og fleiri hótel fylgja nú sömu verðstefnu og lágfargjaldaflugfélögin eru þekkt fyrir: fela allan aukakostnað og heimta svo aukagjald fyrir minnsta andardrátt.

Enginn kúkur í lauginni en sundspretturinn kostar nokkra þúsundkalla. Mynd Sarah Ackerman
Greinir Chicago Tribune frá þeirri leiðinlegu þróun vestanhafs að margar hótelkeðjurnar séu nú farnar að setja aukagjöld á ýmislegt það sem hingað til hefur verið með öllu innifalið í upphaflegu verði.
Þetta orðið svo slæmt að hótel eru nú farin að taka sérgjald fyrir notkun á öryggishólfum í herbergjum og minnst tvær hótelkeðjur hafa gengið svo langt að heimta tæpar sex þúsund krónur fyrir notkun á sundlaugum hótela sinna.
Ekki aðeins er sundspretturinn þar með orðinn í dýrari kantinum heldur kostar nú víða milli 500 og 700 krónur að fá að geyma farangur á hótelinu en slíkt er jú afleiðing þess að þurfa undantekningarlítið að fara út herbergjum á hádegi þó heimflug sé oft mun seinna. Stöku hótel bæta um betur og setja aukalega gjald á þá sem ekki skila lykli sínum á slaginu.
Þetta er fyrir utan hefðbunda álagningu hótela á míníbörum sínum, morgunverði og algengt er að greiða þurfi feitt aukagjald fyrir netaðgang.
Allt þetta segja fræðingar að sé um að kenna vefmiðlum á borð við Tripadvisor og hótelbókunarvélum því þar skipti höfuðmáli að bjóða hvað besta verðið í hverjum flokki fyrir sig. Það er síðan ekki fyrr en bókað er sem aukagjöldin hlaðast upp nákvæmlega eins og reyndin er hjá flugfélögum mörgum.
Ritstjórn Fararheill.is veit ekki til þess að mörg hótel í Evrópu brúki þennan háttinn á enn sem komið er að frátöldu gjaldi fyrir netaðgang en venjan er að það sem gerist vestanhafs finnur sér leið yfir hafið fyrr en síðar.







