Þau eru ekki svo ýkja mörg söfnin sem öðlast heimsfrægð fyrir það hversu léleg þau þykja en eitt sem var ítrekað í þeim hópi hefur nú lokað dyrum sínum fyrir fullt og allt.

Eins og lifandi eftirmyndir þeirra Victoriu og David Beckham. Eða ekki.

Eins og lifandi eftirmyndir þeirra Victoriu og David Beckham. Eða ekki.

Þar er um að ræða Tussauds House of Wax í Norfolk héraði í Bretlandi en það lokaði ekki vegna skorts á gestum heldur vegna aldurs eigendanna.

Safnið var ákaflega vel þekkt eins og önnur slík fyrir að eiga fjölda vaxmynda í fullri stærð af heimsfrægu fólki. Gallinn bara sá að vaxmyndirnar líktust engan veginn fyrirmyndum sínum.

Þess vegna öðlaðist safnið frægð heimafyrir og segir breska blaðið Guardian frá því að svo mjög hafi verið áhugi á safninu að það hafi átt aðdáendaklúbba víðs vegar um Bretland. Slíkt er yfirleitt ekki raunin nema um heimsklassasöfn á borð við Pompidou eða Louvre.

Lifandi komin þau Travolta, Cliff Richard og Liza Minellli.

Lifandi komin þau Travolta, Cliff Richard og Liza Minellli.