Lítið fer fyrir tilboðum íslenskra ferðaskrifstofa með fljótabátum í Evrópu og annars staðar. Sá ferðamáti nýtur þó vaxandi vinsælda enda bátar, skip og þjónusta öll orðin fyrsta flokks sem ekki var alltaf raunin áður. Nú er hægt að kaupa slíka ferð með duglegum afslætti.
Um er að ræða ýmsar ferðir á ám Evrópu með fyrirtækinu Avalon Waterways sem þykir eitt hið allra besta í geiranum.
Allnokkrar ferðir þeirra, allt frá sex dögum og upp í tólf, eru í boði nú á tilboðsverði og allt að hundrað þúsund króna afsláttur fyrir par eða hjón á völdum dagsetningum.
Og ferðirnar bera ljúf og heillandi nöfn eins og sjá má á vef þeirra en meðfylgjandi myndband ætti að sannfæra efasemdarmenn um hve dásamlegt það er að fljóta niður ár Evrópu áhyggjulaus í lúxus.








