Skip to main content

Óvenju mikil gróska er í tilboðsferðum þennan dag nýs árs. Ekki þó alveg á óvart því reynslan sýnir að hvað flest flug- og ferðatilboð detta inn í janúar.

Gróska þennan daginn í ferðatilboðum

Gróska þennan daginn í ferðatilboðum

Icelandair stekkur fram með hraðtilboð sín og það til einna sjö borga að þessu sinni. Þar á meðal fyrsta hraðtilboðið til Edmonton í Kanada en þangað hefst beint flug innan tíðar. Aðrar borgir í boði næsta sólarhringinn eru Boston frá 27.900, New York frá 27.900, London frá 14.900, Stokkhólmur frá 14.900, Osló frá 14.900 og Frankfurt frá 16.900. Ferðatímabil er í flestum tilvikum frá janúar og vel fram í mars.

Vitaferðir, dótturfyrirtæki Icelandair, auglýsir þrjár tilboðsferðir. Skíðaferð til Madonna di Campiglio á Ítaliu frá 109.900 krónur á mann miðað við tvo. Sömuleiðis tilboðsferð til Tenerife 16. janúar og tilboðsverð á flugi til Kanarí og Tenerife.

Heimsferðir lækka verð á skíðaferðum til Austurríkis nú í janúar og fæst slík ferð frá 99.900 krónum. Einnig í boði þar stökktilboð til Kanarí í næstu viku.

Þá er London ennþá á flugtilboði hjá Wow Air. Flug aðra leið án farangurs 13.800 krónur.