Ekki virðist ganga allt of vel að bóka síðustu ferðir ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn til Tenerife þennan veturinn. Ferðaskrifstofan hefur lækkað verð á mörgum þeirra í nóvember og desember og bendir á hversu tilvalið sé að kaupa jólagjafirnar á eynni.
Fararheill tekur fullum hálsi undir það. Tenerife er merkilega ódýr staður til að versla vörur af ýmsu tagi og það sem meira er; meðalverð á vörum á borð við föt, skóm, húsgögnum er hvorki meira né minna en 42 prósentum lægra en í Reykjavík.
Það getur því margborgað sig að láta sig hafa eina ferð suðureftir fyrir þessi jólin, fata sig og fjölskylduna upp og rumpa öðrum jólagjöfum af í leiðinni.
Úrval Útsýn tekur þetta með í reikninginn og farangursheimild að 20 kílóum fylgir með í pakkaferðum ferðaskrifstofunnar þó reyndar óvíst sé hversu lengi það dugar verslunarglöðum landanum.
Hitt er svo ósagt látið af hálfu Úrval Útsýn að það er í raun aðeins einn staður á eynni þar sem hægt er að versla til ólífis ef svo má að orði komast. Einn staður þar sem úrval verslana og úrval í verslunum stenst kröfur og er nægilega fjölbreytilegt. Það er auðvitað höfuðborgin Santa Cruz de Tenerife sem lesa má allt um hér í vegvísi Fararheill en þar kemur kyrfilega fram hvar best sé að versla.
Santa Cruz er samt eins langt frá dvalarstöðum þeim er Úrval Útsýn býður og framast er unnt. Flest hótel í boði á suðurströndinni við Los Cristianos en Santa Cruz hins vegar mun norðarlega. Á milli er klukkustundarakstur aðra leiðina.
Sem er ekkert stórkostlegt. Bílaleigubílar tiltölulega ódýrir og ekkert stórmál að keyra í Santa Cruz heldur. Svo er hitastigið alla daga svo ljúft eins og venjulega.
VIÐBÓT:
Eitthvað hafa ferðaskrifstofurnar ofmetið Kanaríferðir næstu vikurnar. Ferðaskrifstofan Heimsferðir auglýsir líka afslátt á ferðum sínum til Kanarí og Tenerife fram að jólum. Kíkið á báða aðila ef áhugi er fyrir hendi og gerið verðsamanburð. Þannig vinna allir. Við fáum gott frí á góðum tíma fyrir ásættanlega upphæð og ferðaskrifstofurnar selja öll sætin og sitja ekki uppi með tap. Viðskipti 101.








