Sú var tíð hér fyrir tveimur til þremur árum að Fararheill sá ekki sólina fyrir flugleitarvél Dohop. Ítrekaður samanburður við aðrar stærri leitarvélar leiddi aftur og aftur í ljós að Íslendingarnir stóðu sig frábærlega og ítrekað allra lægstu fargjöld þar að finna.
Eitthvað syrti í álinn eftir það og þær kannanir sem við höfum gert síðustu tólf til átján mánuði, nú síðast í byrjun júní, sýndu að illa gekk að viðhalda afar góðum árangri. Það reyndar að hluta til eðlilegt því samkeppni í flugleitarbransanum er eiturhörð og stórir og smáir aðilar sífellt að leita leiða til að ná forskoti á keppinautinn.
Nú sýnist okkur þó menn hafa girt sig vel í brók að nýju. Við gerðum aðra könnun þar sem við bárum saman lægstu fargjöld Dohop annars vegar og hins danska Momondo hins vegar á fimm handahófskenndum dagsetningum til fimm handahófskenndra borga næstu mánuði. Dohop nær ekki að bjóða best í öllum tilfellum en í þremur dæmum er Dohop hins vegar að sprengja Momondo vel í tætlur og spara hugsanlegum viðskiptavinum tugþúsundir króna.
Við ítrekum sem fyrr hið fornkveðna að gera verðsamanburð jafnvel milli flugleitarvéla enda á köflum himinn og haf milli þess sem þær finna og bjóða upp á. Öll dæmin að neðan miðast við einn einstakling báðar leiðir en sé heil fjölskylda á faraldsfæti getur sparnaður milli hæsta og lægsta verðs verið umtalsverður.
* Dohop vinstra megin en Momondo hægra megin. Leitað samtímis á báðum vefum milli kl. 14:45 og 14:55 þann ellefta nóvember 2014 og aðeins tekið tillit til lægsta fargjalds.
DÆMI 1: Fram og aftur til London frá Keflavík 5. janúar til 10. janúar 2015
DÆMI 2: Fram og aftur til Kanarí frá Keflavík 9. til 19. apríl 2015
DÆMI 3: Fram og aftur til Tenerife frá Keflavík 14. til 21. maí 2015
DÆMI 4: Fram og aftur Prag frá Keflavík 6. til 13. júní 2015
DÆMI 5: Fram og aftur Róm frá Keflavík 17. til 31. júlí 2015












